Stúlka, kona, annað segir frá lífi og veruleika tólf ólíkra persóna – flestar þeirra eru þó þeldökkar, flestar eru breskar, flestar eru konur – sem tengjast á einhvern hátt. Miðaldra lesbískt leikskáld, uppreisnargjörn unglings ...
Stúlka, kona, annað segir frá lífi og veruleika tólf ólíkra persóna – flestar þeirra eru þó þeldökkar, flestar eru breskar, flestar eru konur – sem tengjast á einhvern hátt. Miðaldra lesbískt leikskáld, uppreisnargjörn unglingsstúlka, skúringakona með háskólapróf í stærðfræði, ung glæsikona á framabraut í viðskiptalífinu, norðurensk bóndakona á tíræðisaldri, kynsegin áhrifavaldur, íhaldssöm hvít miðstéttarkona … Í gegnum sögur af baráttu, rasisma, femínisma, kynvitund, elskendum, kynlífi, feðraveldi, pólitík, velgengni og vandamálum kynnist lesandinn uppruna þeirra, fortíð og umhverfi.
Fjörleg og tímabær nútímasaga sem fékk meðal annars Booker-verðlaunin 2019 og var útnefnd skáldsaga ársins á British Book Awards sama ár, auk þess sem Evaristo var valin höfundur ársins þar.
Bernadine Evaristo hefur skrifað fjölda bókmenntaverka sem hlotið hafa mikið lof. Hún er prófessor í ritlist við Brunel University í London. Helga Soffía Einarsdóttir þýddi.
We are using technologies like Cookies and process personal data like the IP-address or browser information in order to personalize the content that you see. This helps us to show you more relevant products and improves your experience. we are herewith asking for your permission to use this technologies.