Litla skrímslið hefur eignast kettling. Hann kisi er ógurlega sætur og mjúkur og litla skrímslið er alltaf með hann. Dag einn hverfur skrímslakisi og finnst hvergi. Litla skrímslið er miður sín. En af hverju er stóra skrímslið svona ...
Litla skrímslið hefur eignast kettling. Hann kisi er ógurlega sætur og mjúkur og litla skrímslið er alltaf með hann. Dag einn hverfur skrímslakisi og finnst hvergi. Litla skrímslið er miður sín. En af hverju er stóra skrímslið svona þögult?
Skrímslakisi er áttunda bókin um litla og stóra skrímslið. Bækurnar hafa verið þýddar á fjölmörg tungumál og hlotið margs konar verðlaun og viðurkenningar. Sjöunda bókin, Skrímslaerjur, var tilnefnd til verðlauna Norðurlandaráðs fyrir barna- og unglingabókmenntir.
Í tilefni þess að 10 ár eru frá útgáfu fyrstu bókarinnar um skrímslin hefur þriðja bókin, Skrímsli í myrkri, verið endurprentuð og er dreift samhliða þeirri nýju.
We are using technologies like Cookies and process personal data like the IP-address or browser information in order to personalize the content that you see. This helps us to show you more relevant products and improves your experience. we are herewith asking for your permission to use this technologies.